Prófíll

  • Nafn: Róbert Bjarni Bjarnason
  • Netfang: robert@aviation.is
  • Símanúmer: 8656840
  • Atvinna: Flugmađur hjá Ryanair
  • Um mig: Hć ég heiti Róbert Bjarni en er oftast kallađur Róbert. Ég bý núna eins og er á gistiheimilum út um alla Evrópu ţar sem ég vinn sem flugmađur hjá Ryanair. Hingađ til hef ég veriđ latur viđ ađ blogga og ţađ er allt eins líklegt ađ ég haldi ţví áfram.
  • Annađ: www.myspace.com/robertbjarni

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Nýjar fréttir og nýtt blogg á nýju ári

21. janúar 2008 klukkan 19:37
Ég er orðinn nokkuð viss um það að fólk sé komið með það á hreint að það getur verið þoka í Hahn.

Eftir jólin þá komu áramótin óðfluga og að sjálfsögðu var haldið upp á það. Ég fór ásamt fullt að fólki sem að ég er að vinna með á skemmtistaðinn hérna og ég held að allir hafi skemmt sér konunglega. Toppur kvöldsins var þó án efa flugeldasýningin en ég get svarið það að ég hef aldrei séð svona lítinn fjölskyldupakka, hvað þá á flugeldasýningu.
Ég byrjaði síðan að fljúga aftur 2.janúar en frídagarnir mínir eru síðan notaðir stíft í það að koma sér betur fyrir. Núna er íbúðin orðin vel IKEAvædd en auk húsgagna frá Ikea þá hefur bæst við þvottavél, gardínur og rúm. Allt hefur komið vel að notum en næst á dagskrá er að kaupa bíl. Mamma ætlar síðan að kíkja til mín í heimsókn næstu helgi og það er aldrei að vita nema að ég bæti einhverju í safnið þá.

Til að enda þetta þá ætlaði ég að setja inn nokkrar loftmyndir en það virðist ekki ætla að ganga upp. Ég reyni það aftur á morgun.

Kv.

Ţoka í Hahn

28. desember 2007 klukkan 10:10
Nú eftir að ég var búinn í flugherminum á East Midlands þá lá leiðin aftur til baka. Flugstjórinn sem ég flaug með í herminum var svo almennilegur að hann bauð mér að fá far með sér til Stansted. Að sjálfsögðu þáði ég það en varaði hann þó við því að ég væri með frekar mikið af dóti með mér. Hann sagði það ekki vera neitt mál og hann myndi hjálpa mér með dótið í gegnum Stansted. Í stuttu máli sagt þá hef ég aldrei farið jafn auðveldlega í gegn. Eftir að ég kom til baka þá tók við jólafríið mitt. Það stóð yfir í 5 daga og var bara vægast sagt frekar afslappandi. Ég byrjaði síðan að fljúga aftur 26.des og flaug þá til Pescara á Ítalíu og seinna um daginn til Palma De Mallorca. Í gær flaug ég síðan aftur en þá var veðrið heldur betur annað. Fyrsta flugið var til Pisa en síðan til Bari og í bæði skiptin sem við vorum í Hahn var þoka. Hérna eru nokkrar myndir:

Þoka
Á flugbrautinni rétt fyrir flugtak.

þoka
Á akbrautinni á leiðinni út á flugbraut.

þoka
Hérna sést glitta í aðra Ryanair vél sem var undan okkur í röðinni.

Veðrið í dag er hins vegar allt annað en þó smá þoka. Á morgun fer ég síðan til Tenerife en í dag er ég á bakvakt. Það stóð til að reyna að komast aftur til Íslands yfir áramótin en verðmiðinn er alltof hár í að ég tími því :) Kem bara seinna á nýju ári. 

Ég vil óska öllum gleðilegra jóla og góðs nýs árs og þakka öllum þeim sem að sendu mér jólakort, gáfu mér jólagjöf eða á annað borð sendu mér jólakveðjur yfir jólin.


Stiklađ á stóru

18. desember 2007 klukkan 08:06
Jæja nú held ég að það sé kominn tími til að setja inn smá fréttir. Eins og flestir vita þá er ég kominn með mjög fína íbúð í bæ sem heitir Traben Trarbach. Þessi bær er staðsettur í Moseldalnum við ána Mosel. Fyrst stóð til að fara til Trier en það gekk síðan ekki upp á endanum þegar ég loksins fékk einhver svör. Eftir á að hugsa þá er þessi íbúð sem að ég er í núna miklu betri kostur en ég ætla að setja inn myndir þegar ég get. Þetta býr síðan til annað vandamál en núna þarf ég að kaupa mér bíl.
Eftir um 8 mánuði þá ákvað ég að skreppa til Íslands. Það var orðinn langþráður draumur og vel þess virði. Á sex dögum þá náði ég að hitta næstum því alla sem ég þekki en auk þess nýjasta meðliminn í vinahópnum, en sá töffari er litli strákurinn hennar Eyrúnar. Það er reyndar einn hlutur sem að ég skildi ekki allan tímann en hvað var málið með veðrið? Kannski bara Ísland, einsog alltaf.
Núna er ég staddur á East Midlands í Nottingham. Það er vegna þess að á sex mánaða fresti þarf maður að fara í flughermi og gera ýmsar æfingar. Það er meðal annars að missa mótor, eldur um borð og ýmislegt í þeim dúr. Ég verð hérna þar til á fimmtudaginn en eftir það þá verð ég að reyna að drusla sem mestu af dótinu mínu með mér yfir til Þýskalands. Fyrir þá sem muna þá geymdi ég dót hérna í sumar áður en ég fór í línuþjálfunina. Þegar ég er búinn hér þá hef ég frí alveg þar til 25.des en á svo að fljúga 26.des. Því miður þá er ekkert flug fyrir mig frá Íslandi 25.des svo að ég kem til með að eyða jólunum hérna úti í góðra vina hópi. Á móti kemur að ég er með frí yfir áramótin og ætla ég að reyna að koma aftur þá. Einhvern veginn er sá draumur farinn að vera fjarlægur en það er vegna þess að flugmiðinn kostar núna í kringum 50þús. Ég ætla þó að fylgjast með og sjá hvort að þeim detti í hug að lækka verðið.

Annars er allt gott að frétta hérna en nánari upplýsingar um íbúðina koma þegar ég er kominn til baka.

Gleðilegt jól.

Í Hahn

03. nóvember 2007 klukkan 06:33
Jæja loksins kom að því að ég komst til Hahn. Ég byrjaði að fljúga 1.nóv og flýg eins og vanalega 5 daga og fæ síðan fjóra daga í frí. Frídagana sem ég átti í frí áður en ég fór til Hahn nýtti ég að sjálfsögðu í ferðalag en ég kom við á East Midlands og náði í alveg rosalegan keppnis frakka. Síðasta frídaginn minn nýtti ég hins vegar í að keyra um og skoða svæðið hérna í kring. Þetta lítur allt vel út en ég ætla að gefa mér góðan tíma í að finna einhvern góðan stað til að búa á. Að öllum líkindum verður það í kringum Trier en þetta á allt eftir að koma í ljós. En þangað til verð ég á hótelinu hérna hinumegin við götuna.
   Núna á eftir þá flýg ég Tenerife South sem er nú ekki merkilegt að öðru leyti en því að það tekur 4,5 klst að fljúga þangað aðra leiðina. Þetta verður því mitt lengsta flug hingað til. Ég uppfærði líka flugskrána en þar má sjá ýmsa spennandi staði eins og: Mallorca, Marrakesh, Milan og að sjálfsögðu Gautaborg svo nokkrir séu nefndir.

Þangað til næst, eigið góðar stundir.

Eins og köttur...

21. október 2007 klukkan 15:05
Tíminn líður hægt hérna eins og er en frídagarnir eru alveg að klárast. Þá tekur ný törn við og mín síðasta á gamla samningnum og vonandi líka sú síðasta í Marseille í bili. Þessa frídaga hef ég nýtt í afslöppun en í morgun skrapp ég með rútunni til Marseille til að komast í þvottavél. Ekki slæmt.
  Í gær ákvað ég að drepa tímann aðeins með því að fara í göngutúr meðfram flugvellinum. Flugvöllurinn liggur fyrir utan borgina sjálfa en er þó í námunda við Miðjarðarhafið. Þessi göngutúr minn var ekki frásögu færandi nema hvað að ég sá stærstu rottu sem ég hef á ævi minni séð. Hún var mjög svipuð venjulegum heimilisketti á stærð. Þvílík synd að ég var ekki með myndavélina með. Um kvöldið skrapp ég síðan yfir á Sofitel sem er næsta hótel við hliðin á hótelinu sem ég er á. Það er fjögurra stjörnu og með alveg hreint ágætis restaurant. Þar fékk ég mér að borða og horfði síðan á úrslitaleikinn í rugby. Suður Afríka stóð uppi sem sigurvegari á móti Englendingum í leik sem ég þekki reglurnar ekki alveg í en náði þó að skilja aðalatriðið. Slást um boltann og þegar einhver nær honum þá kallar einn af þessum fullorðnu mönnum "HRÚGA"  og allir hoppa ofan á hvern annan. Síðan á maður að reyna að fær hrúguna yfir línuna hjá hinum. Mjög einfalt.

Ég uppfærði rosterið sem ennþá er fyrir Marseille en ég geri ráð fyrir að það breytist yfir í Hahn þegar nær dregur mánaðarmótum.

Með bestu kveðju,

Nýr samningur og Hahn

18. október 2007 klukkan 19:36

Eftir smá bið þá gerðist það loksins að ég fékk nýjan samning ásamt föstum stað. Sá staður mun vera Hahn hjá Frankfurt í Þýskalandi en það er akkúrat það sem ég vildi og er því mjög ánægður.
   Á undanförnum dögum og vikum hefur ekki mikið dregið á mína daga frekar en venjulega en þó var nokkuð sem stóð uppúr. Hún Hanna dreif sig heim eins og fyrr sagði en eftir að ég var búinn að fljúga mína lotu þá tóku við 4 frídagar og 2 dagar í standby. Á þessum tveimur dögum var ég ekki kallaður út svo að ég endaði á því að vera í samtals 6 daga fríi. Ekki slæmt en ég hefði þó kosið að eyða þeim einhvers staðar annars staðar en í Marseille. Eftir þessa frídaga komu þrír vinnudagar. Þessa daga flaug ég einu sinni til Skavsta í Svíþjóð en tvisvar sinnum til Bournemouth. Þessir dagar voru nú frekar tíðinda litlir en þó átti maður að nafni Pierre Bogart sem er yfirflugstjórinn í Marseille ákveðið gullkorn sem ég gat ekki hætt að hlægja að. Áður en ég get sagt brandarann þá verð ég aðeins að útskýra um hvað við vorum að tala. Þannig er að á þessum flugvélum þegar verið er í flugtaki og flugvélin er ennþá að byggja upp hraða á flugbrautinni til að taka á loft þá er ákveðið orð sem flugstjórinn segir ef eitthvað kemur uppá sem hamlar öruggu flugi og ákveðið er að stoppa á flugbrautinni. Þetta orð er mismunandi hjá flugfélögum en hjá Ryanair var orðið “Abandon” fyrir valinu. Samtalið var síðan eftirfarandi.

 

Pierre: “Robert did you hear that on the radio, these French guys are unable to speak basic English. Come on I am French and I speak perfectly good english.

Ég: Yeah, it is funny that you say that because there are alot of different nationalities within Ryanair and of course people have different backround and for that reason I don’t understand why Ryanair has the word “Abandon” for rejected Take off. Because it’s effectively A-ban-don.  It would be easier to say “Stop”. There are three words in English that everybody understands, no matter how little English they speak and they are: Coke, McDonalds and Stop.

Pierre: Yeah you are right.

Eftir smá umhugsun segir Pierre síðan frekar pirraður eitthvað.
 

Pierre: You know what Robert, on my last simulator session I was flying with this guy and he didn’t understand what I was saying because of bad English. It was driving me crazy. Maybe I should have checked him and said to him: “Hey, after the simulator do you want to Stop at McDonalds and have a Coke?”

 

Ég vona að þið skiljið þetta þar sem að þetta er á ensku. En þangað til næst….

 

….veriði hress, ekkert stress, bless

 

Nýjar og gamlar fréttir

06. október 2007 klukkan 13:50
Það er nú ekki margt nýtt að frétta á mínum bæ en þó eitt og annað. Eftir að ég kláraði prófið um daginn þá var ég beðinn um að fljúga áfram í Marseille. Það plan hefur núna lengst aðeins og verð ég einn mánuð og eina viku til viðbótar hér. Vegna þessa þá ákváðum við Hanna í sameiningu að það væri best að hún myndi fara heim og vinna þar þangað til að ég verð  sendur til Hahn. Síðan myndi hún koma yfir til mín þegar ég er kominn með nýjan samning. Vonandi gerist þetta sem fyrst þar sem að þessi dvöl á hótelherbergjum er að verða endalaus. Ég á samt að fá svör í enda mánaðarins þar sem að núverandi samningur minn rennur út í lok þessa mánaðar. Sjáum til hvað gerist. Ég bætti síðan við nýjum tengli í tenglasafnið en þar er hægt að fylgjast með því hvert og hvenær ég er að fljúga á hverjum degi fyrir sig.

Þetta var þó allt og sumt en ég læt inn nýja færslu þegar eitthvað stórmerkilegt gerist hérna úti í mínum málum.

Með bestu kveðju,

Marseille

25. september 2007 klukkan 10:19
Jæja núna held ég að það sé kominn tími á nýjar fréttir hérna utan úr heimi. Ég veit það að ýmsir aðilar eru búnir að vera að þrýsta á nýjungar en í stuttu máli sagt þá hefur sá utanað komandi þrýstingur lítil sem engin áhrif á jákvæðan hátt. Kærastan mín hún Hanna er nú miklu duglegri við að blogga heldur en ég en það er aðallega vegna þess að hún er eins og er í fullri vinnu við það. Þá sem að þyrstir í fréttir er velkomið að kíkja á síðuna hennar þegar þeir eru búnir að kíkja á mína. Slóðin á síðuna hennar er www.hannamaggy.bloggar.is en muna samt mína síðu fyrst og síðan hennar :)

En að öðrum málum...

Þegar lotan kláraðist í Hahn þá mættum við aftur til Marseille. Í fyrsta skipti síðan ég byrjaði þá er ég tvær vikur í röð á sama staðnum sem er nú ágætt til tilbreytingar. Ég hefði þó kosið að fá að vera lengur í Hahn. Í Marseille er ég búinn að fljúga í 3 daga en var alltaf með einn dag á standby í milli. Alla þessa daga flaug ég bara tvo leggi og alltaf á sama staðinn sem var Stockholm Skavsta. Ágætt það. Síðasta daginn tók ég síðan enn eitt prófið en það er svokallað line check. Það er eiginlega próf í venjulegum degi. Það stóðst ég með prýði og er þjálfun minni sem slíkri lokið hjá Ryanair í bili.

Frá því á sunnudaginn þegar ég kláraði prófið hef ég verið að bíða eftir símtali frá einhverjum yfirmanninum varðandi nýjan samning og í morgun fékk ég þær upplýsingar að ég fæ símtal innan tveggja daga og þá verður komið á hreint hvert ég verð sendur til að byrja með. Hahn var þó ekki líklegt að mér heyrðist en það er þó alltaf hægt að halda í vonina.

Ég að bíða í Frankfurt

                                  Ég að bíða í Frankfurt eftir flugi til Stansted.

Með kveðju í bili,

Róbert Bjarni

Hahn

12. september 2007 klukkan 17:36
Frá því að ég bloggaði síðast þá er ég búinn að gera ýmislegt en það helsta er þó það að ég er kominn til Hahn.  Ég kláraði þá daga sem ég átti í Marseille og voru þeir alveg mjög fínir. Þar flaug ég meðal annars með Base flugstjóranum í þrjá daga.
    Frá Marseille var ég síðan beðinn um að mæta til Hahn svo að helgin sem ég fékk í frí fór að mestu leiti í ferðalag. Hanna kom nú samt til mín á fimmtudeginum, daginn eftir að ég var búinn með mína lotu í Marseille. Við biðum síðan til föstudags eftir nýju áætluninni og flugum síðan yfir til Stansted á laugardeginum. Á Stansted gistum við á Holiday inn Express og verð ég að segja að það sé alveg fínasta hótel. Á sunnudeginum vorum við síðan komin yfir til Hahn en ég byrjaði yfirstandandi lotu á mánudaginn síðasta. Núna í Hahn hef ég flogið á tvo nýja staði og annar þeirra er Alghero á eyjunni Sardiníu og hinn staðurinn er Wroclaw í Póllandi.
    Í dag fór ég í svokallað progess check en það er ákveðið stöðupróf sem maður fer í þegar maður er búinn að fljúga 60 sectora. Það gekk alveg ljómandi vel en ég flaug til Póllands og Ítalíu. Á morgun er það síðan Spánn og Ítalía sem ég fer til.

Ég tók saman nokkar myndir og skellti þeim í myndaalbúmið. Þangað til núna þá var ég búinn að vera í vandræðum með það hversu stórar þær eru en Axel flugkappi með meiru kom með alveg sígilt ráð úr sínum kokkabókum og reddaði því. Takk fyrir það Axel.

En þangað til næst,  hafið það gott.

Marseille

31. ágúst 2007 klukkan 16:16
Núna er ég búinn að vera í Marseille í tvo daga og byrjar næsta lota á morgun með flugi til Stansted og Þorp.
Hingað til hef ég ekki verið að gera margt hérna á meðan ég hef verið að bíða eftir því að fara að fljúga en fyrir tilviljun rakst ég á frekar fyndna frétt frá Ryanair á heimasíðunni þeirra . Þar eru þeir að gera athugasemdir við fund Bresku auglýsingayfirvaldins ASA sem leggst á ensku UK Advertising Standards Authority. ASA komst að því að 27punda lestarmiði frá Stansted til Brussel Charleroi væri ódýrari en 15 punda flugmiði með Ryanair sömu leið. Ekki nóg með það heldur var flugtími upp á 1klst og 10 mín orðinn lengri en lestarferð sem tekur 2 klst og 11mín. Ryanair sem er nú þekkt fyrir það að fara óvenjulegar leiðir mótmælti þessu og sendi ASA bréf ásamt bókinni Dummies Guide to Mathematics.
Núna nokkrum dögum seinna sé ég að á síðunni þeirra er ennþá verið að gera grín að þessum fundi. Þar er búið að setja upp tvær spurningar sem að eiga að skera úr um það hvort maður sé asni eða ekki. Ef maður svarar þeim rétt þá kemur upp mynd af Albert Einstein en ef hins vegar maður svarar þessu rangt og klikkar á apply neðst á síðunni þá fer maður beint inn á síðu hjá ASA til þess að sækja um vinnu. Ég verð nú bara að segja að mér þyki þetta frekar fyndið og endurspeglar svolítið að öll umfjöllun hvort sem hún sé góð eða slæmt er samt sem áður umfjöllun.

Ég ætla að setja inn nokkrar vel valdar myndir við tækifæri, eða um leið og ég nenni.

Kveðja,

Róbert Bjarni

Könnun

Hvernig verđa jólin?

Klukkan